Ég var að tala við Toggu um þetta í gær á meðan ég kjassaði hundinn og rifjaði upp þegar ég bjó hjá Tótu og Hafsteini.
Eina nóttina var ég með hósta, sem maður tekur varla eftir þar sem maður er mitt á milli svefns og vöku, þegar það er bankað á hurðina hjá mér... Ég stekk fram úr og held að það sé möguleiki á að eitthvað sé að en þegar ég opna hurðina stendur Hafsteinn "Mary Poppins" með hóstasaft og tvær skeiðar sem hann hellti í án þess að segja nokkuð, rétti mér eina og skellti hinni í sig. Tók skeiðina frá mér og sagði Góða nótt...



2 ummæli:
hæhæ
sæta sæta
Ekkert smá flottar myndirnar og góðaveðrið ...bara næs !
Hafðu það gott kjútí ...ég hlakka sjúkt til að fá þig heim.
kv Heiða pæja ;)
Mikið er ég glöð að þú sért aftur farin að blogga. Búin að sakna þess svo rosalega mikið að lesa um þig;) Hlakka alveg svakalega til að fá þig heim og knúsa þig í spað. Vona að þú komist í afmælið hennar Angelu, annars held ég bara spes uppá það fyrir þig ;)
elska þig í ræmur
Vallý
Skrifa ummæli