Mamma getur alltaf komið með nokkur gullkorn...
Ég sendi mömmu sms í gær um að ég væri komin með gamla símanúmerið mitt aftur. Mamma ætlaði sko að hringja í mig og segja mér að skilaboðin væru móttekin og heyra í mér í leiðinni... En sama hversu oft hún hringdi í mig þá var alltaf á tali hjá mér. Þetta sagði hún mér í morgun. Ég varð pínu hissa og sagði nú? ég var bara ekkert að tala í símann í gær. Mamma heldur því fram að eitthvað sé þá bilað við símann eða símkortið. Ég prufa því að hringja í símann minn og allt í lagi með hann, hann hringir þessari fínu hringingu og allt saman... Ég fer og tala við mömmu segi henni að það sé allt í lagi með símann. Hún var voðalega hissa og segir "skrítið! ég hringdi bara í 899-****" ég horfi á mömmu og segi "mamma... það er ekki von að það var alltaf á tali... þetta er númerið þitt". Mamma var semsagt í allt gærkvöld að reyna að hringja í sjálfa sig.
þriðjudagur, apríl 10, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



2 ummæli:
Mömmu-ismi?
Togga.
hahaha.. mamma þín er algjör perla ;)
Skrifa ummæli