Komin til Valhallar og byrjuð að vinna þar. Núna í kvöld var rosalega flott veisla og búið að breyta hótelinu fyrir fólkið sem var að koma. Mjög svona flott og fínt fólk á ferð og því átti allt að vera í toppstandi. Tobba litla eingöngu búin að læra og vinna í einn dag á Valhöll og strax sett í þjónabúninginn... Jú jú ég geri þetta bara og reyni eftir minni bestu getu að gera allt eins og ég átti að gera. Fólkið að koma í hús og við öll stillt upp. Ég sett í eina stofuna með bakka af kampavíni. Nokkuð mörg glös á bakkanum, heldur farið að síga og enginn kominn til þess að létta af pakkanum mínum... Djö afhverju kemur fólkið ekki til mín og tekur sér glas? Best ég reyni að skipta um hendi... Hefði betur átt að sleppa því þar sem 15 kampavínsglös sulluðust yfir mig... þarna fékk ég mitt fyrsta kampavínsbað og alls ekki úr lélegu hráefni. Tobba stóð kjurr hélt ágætis svip á meðan kampavínið flaut á milli brjóstanna á henni (loksins komu þau að ágætis notum þrátt fyrir að vera ekki það stór, héldu glösunum á bakkanum) Fólk með snúrur í eyrum og önnur sem var að þjóna löbbuðu í rólegheitum til mín, tóku bakkann, ekkert sagt, bara horfst í augu og kinkað kollum. Tobba rölti rólega úr salnum og þaut svo upp í herbergið sitt þar sem hún fleigði af sér skyrtunni, þurrkaði mesta kampavínið í burtu með handklæði skellti sér í annan topp og jakka yfir og aftur niður í salinn að halda áfram að þjóna! Þvílík samvinna og brjálaðslega vel unnið að því að ekki margir tóku eftir þessu... allavegana vona ég það. Ég var ekki sú eina sem gerði þetta og af þeim þrem sem eitthvað misstu þá kom ég sem best úr þessu. Glösin hjá annarri smullu skemmtilega í steingólfinu og hin sullaði yfir einn herramanninn sem kippti sér svo sem ekkert of mikið upp við þetta. Kvöldið gekk svo rosalega vel fyrir sig eftir þetta, fall er greinilega fararheill ;o)
Our greatest glory is not in never falling but in rising every time we fall. - Confucius
sunnudagur, maí 20, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



2 ummæli:
Hæ snúlla mín,
Til hamingju með fyrsta daginn, ekki slæmt fyrir fyrsta!!!!!!!
Togga.
hehe... segðu.
Skrifa ummæli