laugardagur, júní 23, 2007

Ég alltaf jafn góð við mömmu mína...
Vorum í smá bíltúr, búnar að fá okkur ís og þess háttar og ég bið mömmu um að keyra Laugarveginn. Þegar við erum komnar á Hlemm sjáum við þvílíku bíla röðina og mamma segir "æ eigum við að nenna þessu?" og ég segi "já já, það greiðist úr þessu aðeins fyrir neðan" þannig að við héldum áfram...
Þennan dag hafði Lögreglan ákveðið að vera í eftirliti á Laugarveginum og pikka út alla bíla sem þeir sáu að eitthvað var að... Bíllinn hjá mömmu er sem sagt ennþá með ´06 skoðunarmiða og mamma með bílinn á hinum og þessum verkstæðum til þess að láta lappa aðeins upp á hann því hún ætlar að fara með hann í skoðun fljótlega...
En þarna vorum við komnar á Laugarveginn, beint í flasið á blessuðu Lögreglumönnunum sem ætluðu ekki að leyfa okkur að sleppa, þeir voru meira að segja á spjallinu við fólk þegar hann hálfpartinn hrindir fólkinu frá til þess að ná í rassgatið á okkur... Sama hversu mikið við mamma brostum og ég dró kjólinn minn hærra og hærra upp... þá fékk mamma boðunarmiða í skoðun... Sorry mamma.

I know that you believe that you understood what you think I said,
but I am not sure you realize that what you heard is not what I meant. - Robert McCloskey

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hva klikkuðu lærin!!!

Togga.

Tobba sagði...

Já lærin klikkuðu! kannski spiluðu ofurþykku sokkubuxurnar inní...

Nafnlaus sagði...

Sexy!!!!!!!!!!!!


togga.

Krakkinn