Whoopdidí dú da...
Jæja þá er ég komin í frí frá vinnunni og nú er komið að skólanum.
Búið að vera fínt í vinnunni. Fékk til dæmis að keyra flottan nokkra milljón króna Land Rover. Þurfti að skutla fólki í brúðkaup og þau vildu hafa bílinn hjá hótelinu þegar þau vöknuðu um morguninn þannig að ég fór og skutlaði þeim í brúðkaupið og keyrði svo jeppann heim að Hótel Valhöll. Það var ekkert smá! Maður rétt kom við bensínið og þá þrýstist maður vel í leðursætið eins og jeppinn væri að fara á loft, dásamlegt. Allavegana flottasti bíllinn sem ég hef keyrt.
Einn daginn þurfti ég líka að taka mjög vel á móti kúnnunum okkar þar sem þau voru búin að lenda í því að koma á hótelið sitt og þau virtust ekki vera með herbergi í bókuninni. Svo þau fengu hið fínasta herbergi hjá okkur og ég átti að taka svona extra extra vel á móti þeim.
Ég var þarna í lobbýinu og var aðeins að taka til og þurrka af þegar ég allt í einu rekst í snúru og niður hrynur internet rouderinn og ég reyni mitt besta að grípa hann, sem fer þannig að ég rek mig í aðra snúru sem kippist úr sambandi við fjöltengi. Í öllum þessum hamagang gengur fólkið inn og ég tek eftir því að þetta eru þau svo ég hrópa upp fyrir mig með stóru brosi og hendurnar út í loftið diskóstyle "HÆÆÆÍÍÍÍ"! Aumingjans fólkið stóð þarna bara með vandræða svip og smá samúðarbros til mín og sögðu pent "hi...". Ég tók allavegana á móti þeim á eftirminnilegan hátt ;o)
Annars var hellingur sem gerðist þessa vikuna en ég nenni ekki að skrifa það allt hérna.
Læt vita af mér fljótlega.
"Mix a little foolishness with your prudence: It's good to be silly at the right moment." - Horace
þriðjudagur, júlí 31, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



1 ummæli:
Hæ snúlla!!!!!
Toggan.
Skrifa ummæli