Fór á motocross keppni í gær, rosalega gaman að sjá þetta, ég er að brjálast mig langar svo að prufa! Geri það einn daginn...
Fór svo í grillpartý og dró liðið með mér niðrí bæ, þar hitti ég hana Vallý mína. Fórum inn á einn bar og þar kemur maður til mín sem byrjar að spjalla, ég svara honum en svo hætti mér að lýtast á þetta, Vallý sá það og kallaði mig til sín. Kall gerpið elti mig, við Vallý fórum þá til hópsins okkar sem voru nokkrir félagar mínir. Kallinn hélt áfram að elta mig til þeirra og stóð þarna bara og stalkaði mig gjörsamlega... Ég var byrjuð að tala við strákana og bað þá um að hjálpa mér í þessu, mér væri byrjað að finnast þetta frekar óþæginlegt... Þá stendur sá stærsti upp, ég hélt að hann ætlaði að fara og ýta eitthvað við kallinum en hann bara rölti til dyravarðanna og þeir komu og tóku kall greyið mjög ósáttann í burtu, en ég sat eftir mjög sátt!
Á föstudeginum fór ég um kvöldið og hitti Edduna mína og Stebbann á KB tónleikunum, rosalega gaman hjá okkur, fórum svo heim til þeirra þar sem við sátum í dágóðan tíma eða þangað til við skelltum okkur yfir til Bjarka vin hans Stebba og spiluðum þar actionary það sem eftir lifði næturinnar, ég hef sjaldan fengið eins mikinn magakrampa eins og þarna vegna Eddu, hún er snillingur í að leika! Var með harðsperrur í maganum þegar ég vaknaði morguninn eftir.
Jæja back to studying... Gangi mér vel.
"The man who has confidence in himself gains the confidence of others." - Hasidic Saying
sunnudagur, ágúst 19, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



Engin ummæli:
Skrifa ummæli