mánudagur, september 03, 2007

Þegar ég var yngri var ég vön að koma heim með fulla vasa af steinum sem mér þótti flottir, ég á það til að gera þetta svolítið ennþá en ekki í jafn miklu magni og áður fyrr, þvottavélin allavegana ennþá allt í lagi...
Svo kom að því að ég kom með fulla vasa af plöntum og þessháttar gróðri sem mér fannst fallegt og spurði hvað þetta héti allt það blabla tali tali...
Í gær kom ég með fullt veski af langfætlum og grasmöðkum...
Verður maður bara ógeðslegri með árunum?
Ég er greinilega á réttri hillu þarna í náttúrufræðinni í Kennó...

(vil koma því á framfæri að smádýrin voru í lokuðu boxi ofan í veskinu mínu og ég labbaði heim með gæsahúð og hroll niðrí rassgat...)

"What you are is a question only you can answer." - Lois McMaster Bujold

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hei, eg fann mús inn í húsi hjá mér í dag, þér er velkomið að láta hana ofaní vasa hjá þér líka.

Togga.

Nafnlaus sagði...

hahahaha.... ég fékk bara gæsahúð niðrí rass af því að lesa þetta :) híhíhí

Krakkinn