laugardagur, september 08, 2007

Ég var með stuðning í íþróttatíma... Nemandi minn beyglaði fótinn eitthvað undir sér í hamaganginum og það blæddi aðeins úr tánni, hann kveinkaði sér ekkert rosalega mikið en fékk plástur á tánna... Hann sagðist ekki geta stigið í fótinn, ég sagði honum bara að herða sig, þetta væri bara smá sár á tánni...
Ég var svo með hann í síðasta tíma, var að kenna honum í heimilisfræði og allt gekk vel... Þegar hann er að fara heim segir hann mér að hann geti ekki komið sér í skóinn því honum sé svo illt í tánni, hvað þá gengið út í strætóskýli. Ég tek einn svona mömmu og pabba pakka á þetta og segi honum bara að bíta á jaxlinn, þetta sé bara smotterý...
Daginn eftir kemur nemandinn ekki í skólann þar sem hann er tábrotinn...
úps!

Nothing great was ever achieved without enthusiasm.- Ralph Waldo Emerson

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

-----------VAXTAVERKIR!!!!!--------







BRÓ.

Tobba sagði...

nákvæmlega!

Nafnlaus sagði...

hahahaha....

Nafnlaus sagði...

Hvaða bull er þetta!
Voru ekki báðr fætur á honum?
og jafn langir?

Kv. Pabbi

Krakkinn