Fór til tannlæknis í dag, hef ætlað að fara til hans í ár því ég hef talið mig vera með holu sem ég meira að segja tilkynnti um þegar ég loksins pantaði um daginn... Mótttökuliðið tók á móti mér og 10 mannst stóðu þarna í stofunni sem var blindandi björt, allir með hlífðargleraugu, andlistgrímur og góða þykka gúmmíhanska... Ég svitnaði við mótttökurnar en lét sem ekkert væri.Mér var skellt í stólinn ég óluð niður og ég látin gapa þarna út í loftið, stungið upp í mig þessu ógeðslega plaststykki til þess að taka mynd... ef það er eitthvað sem ég þoli ekki í heiminum þá er það þetta ógeðs plaststykki og heitar klósettsetur en það er annað mál...
Allavegana, þarna fóru fram hinar ýmsu hundakúnstir og pósur með þetta blessaða plaststykki upp í mér þar til ég var byrjuð að kúgast óvenju mikið... Þá loksins sáu þau sér fært um að taka það út úr mér. Herliðið stóð svo með myndirnar í þessu bjarta ljósi sem var inni í stofunni allir mjög íhuglir á svip, klórandi sér í hökunni ýmist kinkandi kolli eða hristandi... Ég beið með sveitta lófana sem ég strauk ótt og títt í buxurnar svo litlu munaði að þær eiddust upp. Loksins fékk ég athyglina aftur og var hálfpartinn vonbrygðis svipur á öllum þarna í kringum mig og mér tilkynnt að ég væri ekkert spennandi því ég væri með mjög flottar tennur og ekkert að þeim... Engin skemmd, þau kölluðu mig öllum illum nöfnum eins og blöffara og ýmislegt verra... En mér var sýnd smá aumkun og kjafturinn skoðaður með fingrum, kroppurum og augum... Tannlækninum fannst ég með flottar tennur, sagði að ég burstaði jafnvel of mikið... (hefur maður heyrt það áður frá tannlækni?) Sagði að það væri ótrúlegt hversu flott stellið væri með það í huga að ég hef ekki farið til hennar í rúm 3 ár!
Einnig sagði hún mér að ég væri komin með endajaxl niður sem þyrfti jafnvel að fjarlægja, ég kom af fjöllum með þennan blessaða endajaxl, tók ekki eftir neinu! Ég hef bara heyrt hryllingssögur um endajaxla.
Seinna um daginn fór ég svo í klippingu :o) hann átti að vera svona til þess að bæta upp *hryllingstannlæknatímann* sem varð ekkert af... en hárið er aðeins búið að breytast.
"Never tell people how to do things. Tell them what to do and they will surprise you with their ingenuity." - George S. Patton



5 ummæli:
djö......... allt þetta fyrir ekkert. Suss og svei, hefðir allavega átt að fá eina viðgerð!!!!!!!!!
togga.
haha guuð ómæ! Lenti einu sinni í þessu. Fór akút til tyrknesk tannsa í Cham vegna klikkaðrar "tannpínu".
Sátt með þig að hafa verið búin að
gera ráð fyrir hinu versta og panta þér sárabætur. ;) Algjört múst að fá svoleiðis!!!
KOSSAR Heiða
*hrollur* já við öll hötum tannlækna *hrollur*
Verst að ég get ekki haldið mig frá þeim fyrir lífstíð, mínir endajaxlar eru líka farnir að koma :(
Tobba
BLOOOGGGAAA MEIRA!!! Það er nú ekki eins og maður heyri í þér reglulega.
kv. Tóta sys
Tobba TObbA toBBa TOOBBAAAAA
kv Heiða
Skrifa ummæli