Jólahlaðborðið var æði! Eiginlega bara hræðinlega södd eftir það! Ennþá.
Var núna að koma af jólaballi skólans. Þar fór fram söngur og gleði og jafnframt helgileikurinn frægi. Á æfingunni í dag komst upp fótur og fit þegar Jósep ældi næstum því á Jesúbarnið sem lá blásaklaust í jötunni... Hringt var heim til Jóseps og hann sóttur. Kennarinn hans og aðstoðarskólastjóri var skikkaður í að taka við hlutverkinu en þegar á hólminn var komið mætti upprunalegi Jósepinn galvaskur og hress og fór með hlutverkið sitt eins og hetja og án þess að særa bligðunarkennd Jesúbarnisins.
In the middle of difficulty lies opportunity. - Albert Einstein
miðvikudagur, desember 19, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



1 ummæli:
Frábær saga, ég er enn þá að hlæja!!!
togga.
Skrifa ummæli