miðvikudagur, janúar 02, 2008

Bíllinn Nonni er búinn að vera alveg frábær... reyndar er rafmagnið eitthvað búið að vera að stríða okkur en svo um daginn hætti hann bara alveg að starta... Þetta var á gamlársdag, mikið rok var, rigning og í sannleika sagt bara leiðindar veður.

Ég þurfti að sækja bílinn upp í Grafarvog, mamma í sjálfboðastarfi bauðst til þess að skutla mér. Við komum út eftir, ég hoppaði upp í Nonna, mamma ók í burtu og Nonni startaði ekki. Ekki leið á löngu þar til mamma var komin aftur með hissa svip að ég væri ekki að elta hana. Við ákváðum að halda aftur heim á leið og skikka pabba til þess að fara með mig á meðan mamma færi að stússast það sem pabbi ætlaði að gera. Við pabbi fiffuðum Nonna á skotstundu. Ég hélt svo út í Bónus að kaupa nokkra hluti inn, um leið og ég stoppaði á planinu á Bónus drap ég í flýtingi á Nonna. Ég lamdi mig í ennið, reyndi að starta einu sinni en það gekk ekki. Ég lamdi mig aftur í ennið og sagði við sjálfa mig að ég myndi bara kljást við þetta á eftir, eftir Bónusferðina...
Kom aftur út í Nonna og hafði smá trú á að ég kæmi honum jafnvel mögulega kannski bara í gang... En hann var ekki alveg á sama máli, bara algjörlega dead á planinu hjá Bónus.
Ég varð pínu pirruð, viðurkenni það alveg, opnaði hurðina greyp pokann með matvörunum og lét nokkur vel valin orð flakka út í loftið en samt aðeins beint að Nonna mínum (fyrirgefðu aftur...). Hoppaði út úr honum, skellti hurðinni aftur og reyndi að læsa... Eeeeen neibb það bara gekk engan veginn upp, sama hvað ég gerði þá vildi Nonni ekki læsast... Þannig að aftur fengu nokkur fögur orð að fjúka þarna út í loftið á meðan ég stóð þarna með matarpokann og stappaði fætinum niður. Í því rifnar matapokinn og ég stend þarna í rigningunni og rokinu með handfang af plastpoka, matvörurnar út um allt plan og ég horfandi upp í loftið gefandi frá mér eitt gott andvarp...
Gaman að þessu

En í dag fór ég meðan og fékk nýjan rafgeymi og núna virkar allt í honum, öll ljós og allt saman sem ég hélt að væri bara eitthvað sambandsleysi í *hóst hóst ljóshærð!*

A pessimist sees the difficulty in every opportunity; an optimist sees the opportunity in every difficulty. - Sir Winston Churchill

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hey þú ert yndisleg! ...vissiru það!!

Gleðilegt ár og takk fyrir frábærar stundir á liðnu ári!
knús Heiðan

gogo Nonni!

Nafnlaus sagði...

Bara flott en hérna gastu ekki bara labbað heim ? hvað erum við að tala um 50 metra eða svo HA.
híhíhí
kv, bró

Tobba sagði...

Blah á þig! auðvitað labbaði ég heim með allar vörurnar í fanginu. En ég þurfti að fara annað... fékk bara mömmu bíl í staðinn, gott að vera búin að kaupa sér bíl og fá alla hina lánaða...

Nafnlaus sagði...

sítrónu bíll.......

togga.

Krakkinn