Þóranna er búin að taka mig á tauinu og hrista mig hressilega. Ég er yfirleitt að vinna þegar hún hringir í mig...
Hún sagði að ég þyrfti nú að fara jafnvel að gera eitthvað fyrir sjálfa mig...
Þannig að á mánudaginn klukkan 18:10 datt mér í hug að hringja í Kramhúsið og ath með salsa kennslu. Mér var sagt að mæta strax eftir 20 mín... sem og ég gerði, sveiflaði mjöðmunum sem og höndunum í takt við kúbverska tónlist... loksins... loksins... gat ég eitthvað notað þessar blessuðu mjaðmir í eitthvað annað en að bömpa fólk hægri vinstri, það var farið að pirra marga... stelpurnar við hliðina á mér fengu reyndar fyrstu mínúturnar að fljúga aðeins en fólk lærði fljótt að vera ekki of nálægt mér...
"What we play is life." - Louis Armstrong
þriðjudagur, janúar 15, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



1 ummæli:
COOL Tobba, var ekki gaman!!! asskoti gott hjá þér dúlla.
Skrifa ummæli