Var að vinna í kvöld, þorrablót hjá fyrirtæki hérna í bænum og allir ágætlega hressir...
Í lokin þegar flestir voru svona að koma sér heim komu upp slagsmál í fatahenginu... Hinn og þessir skallaðir og svona gaman gaman... Yfirþjónninn kallar á okkur hin og Tobba litla ljóshærða, sem er nú fær í flestan sjó, stekkur af stað á milli tveggja fullorðinna manna að rífa þá í sundur áður en meira verður úr þessu, fannst brotið nef alveg nóg. Miðaldra maður sem var meira en höfðinu hærri en ég hafði ekkert í ljóskuna sem lét hann ekki komast upp með neinn dónaskap og hélt honum í dágóðan tíma úti í horni, á meðan hringt var í löggumennina. Fyndið hvað maður notar samt sömu taktana á krakka og unglinga og fullorðna fulla menn...
Hvernig ætli stemningin sé hjá þessu liði að mæta í vinnuna á mánudaginn? Kærur og læti.
"If you treat people right they will treat you right - ninety percent of the time." - Franklin D. Roosevelt
sunnudagur, febrúar 10, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



2 ummæli:
Það var laglegt, ekkert kjaftæði hjá systu. kv bró.
Hefðir átt að sjá hana lyfta kerrunni um daginn, þá hefðiru sko verið stoltur..:) eða stoltari
Skrifa ummæli