miðvikudagur, júní 18, 2008

Fórum í heimsókn fyrir stuttu til Guðmundar og Perlu til þess að sækja lykla. Settumst aðeins í stofuna til þeirra þar sem Bjartur kolsvarti kötturinn þeirra beið okkar. Sá stutti gerði eins og vanalega að heilsa manni og nuddast eitthvað upp við mann... Allt í einu var hann kominn með fésið á sér á bólakaf í hárið á mér og sniffaði þar mikið og nuddaðist... fljótlega fann ég all margar tennur læsast í hausinn á mér og reynt að taka góðan bita af mér... þetta gerðist tvisvar sinnum en þá stökk kötturinn í burtu og virtist standa þarna út á miðju gólfinu í hálfgerðri vímu...
Ég slapp ómeidd frá kettinum Bjarti sem virðist fara í vímu af vissum hárvörum...

Of mikil reynsla er varhugaverð. - Ókunnur höfundur

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

omg Shiitt hvað ég hefði farið að grenja, er allt í laGI með þig???

kv Heiða

Nafnlaus sagði...

something smells fishy......


togga.

Krakkinn