fimmtudagur, júlí 24, 2008

Enn og aftur um bíóferðir...
Fórum aftur í bíó í gærkvöldi, fengum fín sæti að okkur fannst þá.
Fljótlega var ég hálfpartin komin í sætið til hans Halldórs því maðurinn sem sat hliðina á mér lyktaði eins og blautur öskubakki, snittolía og nokkuð gömul djúpsteikingarolía. Hafði greinilega bara stokkið heim til sín eftir heilan vinnudag á vörubílnum sínum, skipt yfir í 3 daga skítugu fötin sín og skellt sér í bíó með vinnufélaga sínum. Hann var svo með nachos og ropaði svona hressilega af því reglulega og ekki bætti það að hann andaði inn og út um nefið svo hátt að ég hélt fyrsta korterið að þetta væri hljóðið í myndinni. Mér var, grínlaust, orðið flökurt af lyktinni. Kláraða smynt-ið mitt á skotstundu og leitaði eins og krakki á sugarrush að tyggjópakka ofaní veskinu mínu, með þá von að bragðið og lyktin af mentol tyggjóinu myndi ná að yfirgnæfa manninn við hliðina á mér.
Halldór aftur á móti lenti hliðina á ungum strák sem nagaði svona heiftarlega á sér neglurnar og skyrpti þeim út úr sér í takt við hraðann í myndinni. Aumingja sá sem sat fyrir framan hann... þurfti að fara í hressilega sturtu eftir bíóið með naglabúnka í hnakkanum. Ég varð eiginlega bara undrandi að hann skildi ekki líka byrja á tánöglunum þegar hann var búinn að snyrta svona vel á sér hendurnar.
Loksins loksins loksins kom hlé... Ætluðum að koma okkur úr salnum allt hléið, maður tróð sér þarna hægt en svo kom að endasætinu. Þar sat maður ennþá sem var með mjög stóran maga (er þetta pent hjá mér?), Halldór tróð sér þarna fram hjá honum en ég var í kjól og ætlaði mér ekki að láta kjólinn fara upp. Maðurinn var svo tillitsamur að glenna fæturna bara meira í sundur. Ég hélt nú ekki og stóð þarna með hendur á mjöðmum og horfði á útglennta stóra maga manninn... Sem andaði út úr sér, "á ég kannski að standa upp fyrir þér".
Eftir hlé vildi ég frekar sitja hliðina á naglanagastráknum...
Gaman að borga 2100 kr fyrir svona skemmtun.

Læt ykkur vita næst þegar ég fer í bíó... ;o)

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mmmmm og hvaða mynd sástu svo... var hún þess virði..

Mig langar svo til að sjá Batman myndina en þori því ekki strax vegna þess að ég veit að bíóið verður fullt af börnum með foreldrum sínum, þar sem foreldrarnir eru fatlaðir og annað hvort halda að myndin sé OK fyrir börnin eða þau tímdu ekki að borga fyrir Pössun..
Elska bíó, þoli ekki fólkið..

Toggan.

Tobba sagði...

Við fórum á Batman...
Sammála þér, elska bíó, hata fólkið...
Fer aldrei aldrei aldrei aftur á frumsýningarkvöldi á mynd. ;o)

Nafnlaus sagði...

WHAT costar 2100 kall i bio? wow , pant ekki fara i bio i brad.

kv Heida

Tobba sagði...

fyrir 2 Heiða. 2100 fyrir tvo. :o)

Nafnlaus sagði...

EEEEEENNNNNNN........ Hvernig var myndin?
BRÓ

Tobba sagði...

Hún var góð um leið og Halldór skipti við mig um sæti og ég færði mig til naglastráksins, man óljóst eftir myndinni fyrir hlé, held það hafi liðið nokkrum sinnum yfir mig eða eitthvað... ;o)

Krakkinn