Jæja núna fer fríið að vera búið og skólinn að byrja, það verður ágætt að koma rútínu á lífið aftur í staðinn fyrir að rúlla í gegnum daginn með svona sitt að hvoru tagi að gera...
Fór með Tótu, Perlu og mömmu í bíó um daginn á Mama mia, frábær skemmtun. Grenjuðum allavegana úr hlátri, ég sérstaklega yfir Mr. Bond að syngja.
Um verslunarmannahelgina fórum við vestur og höfðum það frábært í gömlu húsi þar, fórum í náttúruheitapott og drukkum bjór, bara sæla.
Keypti gleraugu um daginn og ætlaði að fá styrk frá stéttarfélaginu mínu. Fór upp í Eflingu og sótti um gleraugnastyrk, skrifaði umsókn og hitt og þetta.
Fékk bréf frá þeim síðar þar sem bókstaflega stóð " halló, ertu ljóshærð? Borgaðir síðast í sjóðinn árið 2004, þú ert í stéttarfélagi Reykjavíkurborgar og það stendur á síðasta launaseðli sem þú lést fylgja með umsókninni þinni. Beiðni þinni þar af leiðandi hafnað..."
Úps! Fór í dag og sótti um styrk á réttum stað, vonandi.
miðvikudagur, ágúst 13, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



3 ummæli:
æ krútt...
Greinilegt að pían er snarblind, hoho, geri samt ráð fyrir að þú sért nærsýn en ekki fjarsýn.
En hey hvaða spennandi skóladæmi ertu að fara að tækla í vetur??
Sakni sakN
knús
Heiðan
Neibb er fjarsýn eins og gamalmennin... fékk lesgleraugu hehehe!
Ætla að læra nudd! Held að það sé eitthvað svolítið sniðugt ;o)
Sakna þín sömuleiðis!
Ossalega ertu núna ánægð!!! Færð loksins gleraugun sem þú óskaðir eftir heheheheheheheh
togga.
Skrifa ummæli