Jöbb...
Var að keyra um daginn, var stopp og að bíða eftir að komast að til þess að beygja þegar ég sé útundan mér að maður á mótorhjóli sem ég var að bíða eftir til þess að komast rennur í bleytunni því það var búið að vera helli demba. Hann lá í götunni eins og skjaldbaka á bakinu, með hjólið ofaná sér svo hann náði ekki að standa upp. Ég set í hlutlausan og handbremsu og ætla að stökkva til að hjálpa aumingjans manninum, sé svo að bíll sem var á eftir honum ætlar ekki að stoppa heldur ætlar að reyna að keyra framhjá honum...
Þá stekk ég út úr Nonna mínum og hleyp fram fyrir bílinn og hjálpa manninum að komast undan hjólinu, hann var heldur skelkaður og sagði aftur og aftur það er allt í lagi með mig þegar ég spurði hvort hann hafi meitt sig. Þetta var maður á miðjum aldri með smá gráan fiðring í sér á svona fínu mótorhjóli, með pínu brotið stolt. Ég horfði með grimmdar svip inn í bílinn sem ætlaði að troða sér framhjá, sumir hafa akkurat skroppið á klósettið þegar guð var að útdeila heilum.
mánudagur, september 01, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



3 ummæli:
jebb
fólk er fífl
togga.
Ohh Tobba þú ert svo falleg sál.
EN vÓ
HVAÐ ER AÐ öðru fólki??
Heiða
Einusinniskátialltafskáti....
Kv. Bró
P.S. ég hefði troðið mér framhjá og hlegið að honum með opinn glugga. Mohohohohohohohohohohoh:)
Skrifa ummæli