Sunnudagsbíltúr...
Ég ákvað í dag að vera voðalega græn og nota fríkortið mitt í strætó. Ákvað líka að draga hann Halldór með mér þar sem hann á líka svona kort... Ég vildi fara í Smáralindina og athuga hvort ég gæti fundið mér skó fyrir gjafakortið frá Tótu og fjölskyldu.
Allt gekk vel þar til við þurftum að skipta um strætó, vorum upp í Hamraborg, um leið og strætó #2 lagði af stað með okkur innanborðs sáum við annan strætó #2.
Við horfðum á hvort annað og Halldór fór fram í til þess að spyrja strætóbílstjórann hvert hann væri að fara. Strætóbílstjórinn talaði enga íslensku, varla ensku en var þrælgóður í pólsku sem því miður Halldór er ekkert of góður í. En það sem fékkst upp úr bílstjóranum var hLLemúr, sem Halldór skildi sem Hlemmur.
Þangað í pirringi (réttara sagt ég í pirringi, út af því að þetta er eini frídagurinn minn í laaaangan tíma og mér fannst ég vera að eiða honum í strætó, ég sem á bíl!) héldum við. Þegar komið var niður á Hlemm gaf bílstjórinn til kynna að þetta væri endastöð og benti okkur út.
Við fórum út, löbbuðum hinu megin við Hlemm og þar var strætó kominn...
Halldór róaði mig niður meðan ég kallaði bílstjórann ýmsum ljótum nöfnum (lét mín mistök um að taka vitlausan strætó bitna á bílstjóranum). Halldór fór til hans, meðan ég snerist í kringum sjálfan mig af pirringi, til þess að spyrja hann hvort hann væri að fara aftur upp eftir.
Nei nei, núna var hálftími þangað til hann færi aftur og við máttum alls ekki bíða inni því hann ætlaði að fara og fá sér kaffi. Svooooo við Halldór fórum og sátum með rónunum og furðufuglunum inn á Hlemmi og fengum okkur skildu pulsu og kók í gleri þar...
Settumst niður með þetta og þar nálægt sat maður einhverstaðar frá Asíu og lét braka í hverjum putta nokkrum sinnum! Einn í einu!! Halldór var á þessum tímapunkti farinn að halda mér niðri, ég baðandi út höndunum með illt augnaráð í áttina að manninum og fullan munninn af pulsu. Loksins loksins loksins var hálftíminn liðinn og við settumst aftur upp í strætó til þess að komast upp í Smáralind, á einni stoppistöðinn var eldri kona sem ætlaði að koma upp í strætó en bílstjórinn þóttist ekki að sjá hana og ætlaði að halda áfram.
Þarna tókst mér að leysa smá af pirringnum út, því þarna stóð ég upp og kallaði djúprödduð SSSTTTTOOOOOOOOOOPPPPPP!, held að bílstjóranum hafi meira brugðið og stoppað af því, en konu greyið komst inn. Þetta varð að alveg 1 og 1/2 tíma sunnudagsbíltúr með strætó...
En við komumst allavegana að lokum á áfangastað! Hittum Tótu þar, en hún skutlaði okkur heim þegar við höfðum lokið okkur af þarna í Smáralindinni.
sunnudagur, september 21, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



4 ummæli:
P.S
Enginn strætóbílstjóri var skaðaður í gerð þessara ævintýris :D
kv.
H
Þér að þakka... ;o) hehehe
Góði guuuð sko!
Róleg á rúntinum, búið þið ekki í Hafnó eða? Um að gera að tjilla á helmmi í "leiðinni" í Smáralindina :P
Heiðan
Guðana bænum........ GRÆN!!!!! Veistu það að litli bíllinn þinn spýr út miklu minni mengun en þessir helvítis hálftómu strætóar!!
#"%$&%$#%"#$%#grænt my ass........
toggan.
Skrifa ummæli