Ætlaði að vippa mér fimlega yfir keðju sem er strekkt á milli steina á malarplani hjá grunnskóla í borginni...
Hægri fóturinn fór fimlega yfir og í valhoppinu smellti ég tá á þeim vinstri fagmannlega í keðjuna, þannig að ég allt í einu fann hvar ég sveif lárétt í loftinu, horfandi niður á mölina, með hendurnar fullar af dagbók, nuddolíu og bíllyklum, hugsandi neeeeiii helvítis. Fleitti nokkrar góðar kellingar á maganum í flugvélastellingunni því jú ég þurfti að bjarga því sem ég var með í höndunum og náttúrulega líka andlitinu... Kom nokkuð vel útötuð í möl og sandi með góðar skrámur og lekandi blóð niður handabakið. Frétti þegar ég kom inn að mamma hafi ekkert verið betri þegar hún rann í hálku niður ramp þarna í skólanum, þar sem skólaliði kom að henni fastri í handriðinu hjá rampinum...
Whatever you may be sure of, be sure of this, that you are dreadfully like other people.
- James Russell Lowell
mánudagur, október 20, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



2 ummæli:
líkur sækir líkan heim MOHOHOHOHOHOH...........
Togga
Maður skilur ykkur allveg en ,,,,,,,,,,,,, er maður virkilega skyldur ykkur.
Takk fyrir nuddið systa.
BRÓ
Skrifa ummæli