miðvikudagur, nóvember 19, 2008

Var að nudda á mánudaginn, bæði í grunnskólanum og svo upp í Nuddskóla. Var búin rétt fyrir klukkan 21 og hélt þá heim á leið. Halldór hringdi í mig þegar ég var að labba út úr bílnum heima og spurði hvenær ég kæmi heim þar sem ég hafði verið búin að segja að ég væri búin um hálf níu.
Ég hraðlygin sagði að það hefði komið inn nuddþegi sem átti pantaðan tíma en sá sem átti að nudda hann var ekki viðstaddur og ég þyrfti að stökkva inn í málið og nudda manneskjuna, Halldór sagði bara jááááá okey, hvenær kemuru þá heim? Þá fór ég að hlæja labbaði upp stigann og kom inn...

En svo í gærkvöldi þegar tíminn var búinn upp í nuddskóla voru tvær konur sem biðu eftir nuddi, þær vissu reyndar ekki nafnið á nuddaranum en vissu að það var strákur. Strákurinn sem átti að nudda þær hafði eitthvað misskilið svo kennarinn okkar pikkaði í Söru og mig og bað okkur um að nudda konurnar sem við og jú gerðum en áður en ég hentist inn í stofu hringdi ég í Halldór til þess að segja honum að ég kæmi seint heim vegna þess að það hafi verið misskilningur og sá sem átti að nudda væri ekki svo ég og Sara þyrftum að nudda. Það eina sem heyrðist frá Halldóri var, yeah yeah... gamall brandari Tobba...

Meiri tilviljunin...

The best way to predict the future is to invent it.
- Alan Kay

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

snillingur :)
Bró

Krakkinn