mánudagur, desember 08, 2008

Búin að vera að læra fyrir próf...
Í gær var ég svo að skella mér í það að elda smá spaghettí með spaghettísósu til þess að gúffa í sig yfir tölvu og bókum...
Ég byrja auðvitað á því að kveikja fyrst á vitlausri hellu, potturinn á annari hellu en plastskál í hinni... Jú smá plastlykt í húsinu en ég fattaði þetta nokkuð snemma svo ekki var mikill skaði, bara smá plast á hellunni sem ég nudda af, þegar ég er búin í prófunum ;o)
En svo var loks kominn hiti á rétta helluna og spaghettíið sauð í rólegheitunum á meðan ég horfði út um gluggan á snjókornin svífa ljúft niður til jarðar.
Loksins var spaghettíið soðið og þar sem við eigum ekkert sigti ákvað ég að sturta úr pottinum bara með lokinu á eins og ég geri vanalega... sé þegar ég er búin að sulla smá úr pottinum ofan í vaskinn að nokkrar spaghettíræmur reyna að renna ljúflega úr pottinum... Ég sveifla ljósahárinu yfir öxlina og sný pottinum í áttina að mér til þess að koma spaghettíinu aftur í pottinn, það er nú kreppa og ekki má missa nokkrar spaghettílínur... Ég sný pottinum meira og meira og hristi meira að segja aðeins pottinn en veit ekki fyrr en hálfur potturinn hellist yfir mig...
Þarna byrjaði ái dansinn minn, kallandi á Halldór um að hjálpa mér úr buxunum... sem betur fer sá hann hvað gerðist annars hefði hann örugglega misskilið þetta aðeins.
En jú úr buxunum komst ég og inn í sturtu vælandi af sársauka og Halldór minn gangandi í hringi spyrjandi hvort hann gæti ekki gert eitthvað fyrir mig? Ég jafnaði mig á vælinu og fann nokkur verkefni fyrir hann svo hann hefði nú eitthvað fyrir stafni í staðin fyrir að horfa þarna á mig í sturtunni með eldrautt flagnandi læri... Bað hann um að ná öllu vatninu af spaghettíinu, bara að það færi í vaskinn... væri ekki pláss fyrir tvo í sturtunni. Einnig að koma pulsunum og sósunni yfir spaghettíið og hræra. Svo skildi hann hringja á vaktina því ég ætlaði að spyrja lækni hvað meira ég gæti gert. Allt í einu heyri ég voðalega asnalega í Halldóri og fæ svimakast, stend þarna í sturtunni riðandi og heyri fáránlega í mér þegar ég segi Haaaóólldooor... svona eins og það væri búið að hægja verulega á mér... Snögg að hugsa áður en ég myndi liggja killiflöt í sturtubotninum og hausinn í áttina að gólfinu. Halldór farinn að ganga hraðar blessuðu hringina að bíða eftir vaktinni... endalaus hringing. Ég nennti ekki að bíða svo ég hringdi í elskulegan vin minn sem er læknir og spurði hann... Jú allt rétt sem ég gerði, bara kæla þetta ógeðslega vel. Sagði mér svo að ég gæti komið til hans eða vinar hans sem er lýtalæknir og látið tékka á þessu. Sé til.
Sendi svo Halldór út í apótek að kaupa burnfree sem ég er búin maka brunasárið í. Reyndi að halda áfram að læra í gær en sviðinn var heldur mikill, vaknaði snemma í morgun og hélt áfram að læra... Kemur bara í ljós hvað ég get í þessu blessaða prófi.
Allt gert til þess að hafa afsökun fyrir að ganga illa á prófi...

"When a thing is done, it's done. Don't look back. Look forward to your next objective." - George C. Marshall

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

léstu tékka á þessu....

togga.

Tobba sagði...

læknirinn kíkti já aðeins á þetta og sagði að þetta myndi örugglega gróa. Að ég gæti keypt eitthvað krem sem væri gott á þetta.

Nafnlaus sagði...

Já já systa, knús frá mér.
Bró

Krakkinn