sunnudagur, janúar 25, 2009

Það er ýmislegt sem gerist í nuddskólanum og við getum oft talað opinskátt um hina ýmsu hluti.
Um daginn var ég með annan fótinn upp á einum nuddbekknum með smá teygju á innaverðu lærinu, í leiðinni var ég aðeins að toga í vöðvann. Var einnig að spjalla við liðið og þessháttar þegar einn úr hópnum horfir á mig og spyr hvort ég sé með svona stóran grassa (gracilis) sem er einn af vöðvum innanlærisins. Ég heyrði það aftur á móti hann spyrja hvort ég væri með svona stórt gras... Horfði í miðjuna hjá mér með hneikslunartón og sagði ÉG! neiii ég er nýbúin að snyrta! Það horfðu náttúrulega allir á mig stórum augum og fóru að hlæja og ég skildi ekki neitt í neinu fyrr en hann endurtók spurninguna... Þegar allir eru svona opinskáir og hreinskilnir í kringum mann finnst manni ekkert mál að tala um hina og þessa hluti. Skil ekki ennþá hvernig mér datt í hug að hann myndi spyrja að þessu þar sem ég var klædd og ekkert hefði hvort eð er geta sést...


"The grass is not, in fact, always greener on the other side of the fence. Fences have nothing to do with it.
The grass is greenest where it is watered. When crossing over fences, carry water with you and tend the grass wherever you may be." - Robert Fulghum

3 ummæli:

Unknown sagði...

hahahahaha, snilllld.

Nafnlaus sagði...

hahahaha bara þú systa.................og kanski Tóta líka............og Togga ..................og mamma .................... ok og ég líka :)

Nafnlaus sagði...

hehehehehehheh
togga.

Krakkinn