mánudagur, janúar 12, 2009

Ég er héééér!


Allt gott að frétta héðan, erum reyndar að leita að nýrri leiguíbúð ef þið vitið um eitthvað á sæmilegu verði miðað við stærð.

Halldór búinn að fara í sveinsprófið sem gekk bara ógeðslega vel hjá honum.
Ég var uppgreiðslumódel hjá honum, fór í krullun upp á stofuna hans til meistarans hans klukkan hálf eitt og átti ekki að vera hjá honum fyrr en um fjögur. Þurfti að sækja ömmu Halldórs í vinnuna niðrí bæ en ekki alveg á mínútunni svo það tók því ekki fyrir mig að keyra heim, svo ég hélt í heimsókn til Brósa og Perlu, þar voru teknar þessar fínu eldhúsmyndir af mér með rúllurnar í hárinu. Kári Fannar tók mig ekki sátt. Ótrúlegur þessi krakki, talar ekki við mig ef ég er ómáluð og ekki heldur ef hárið er eitthvað í ólagi... Kannski er hann bara sniðugur. Allavegana meðan ég keyrði á miðbæjarvegunum var mikið horft inn í bílinn svo ég hló sjálf mikið, meira að segja á einum rauðu ljósunum labbaði eldri maður fram hjá bílnum og góndi inn hehehe...
Annars þá komst krulluhausinn óhultur í klippistólinn hjá Halldóri og fór þaðan bara alveg glæsilegur.

Ég byrjuð aftur í skólunum. Er búin með íþróttanuddið og núna byrjar eitthvað nýtt skemmtilegt.

Later

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hva ný leiguíbúð.. akkurru.

Kári Fannar er náttúrulega snillingur hahahahahahah, frábært.

heyrumst,
toggan.

Unknown sagði...

Hæhæ
Innilega til hamingju með kallinn!!

-MYNDIR-myndir-MYNDIR

ohh áttu ekki myndir af greiðslunni

knús Heiða

Tobba sagði...

Okkar íbúð er búin að hækka svo mikið og er orðin á fáránlegu verði miðað við stærðina, bara fáránlegt.

Komnar myndir af greiðslunni.

Tóta sagði...

Hæ
Er ekki eitthvað vesen að segja upp þessum stúdentaíbúðum, hafið þið skoðað það?
kv. Tóta

Krakkinn