mánudagur, janúar 19, 2009

Heimasíminn hringdi, Tobba svarar. Hinum megin á línunni var maður sem talaði eins og einhver sem breytir röddinni til þess að vera fyndinn. Þar sem ég er stundum simple fannst mér þetta ógeðslega fyndið og lét það ekkert liggja undir rós þar sem ég hélt að þetta væri vinur Halldórs.
Þessi maður sagðist vera að hringja frá Forlaginu og vildi tala við Halldór. Halldór var því miður ekki við svo ég fékk að tala við hann áfram. Hann spurði hvort það mætti koma með gjöf til okkar og eitthvað bla sem ég heyrði ekki þar sem ég hló svo mikið og sagði já já, hann spurði hvort ég væri kona Halldórs og ég sagði líka já já. Hann spurði hvort við yrðum heima um kvöldmataleitið og eftir það og ég hélt áfram með já já-in. Hann var orðinn frekar vandræðalegur í lokin. Ég sagði loks bless og kallaði á Halldór. Halldór hringdi í vin sinn sem ég hélt að þetta væri og hann kom algjörlega af fjöllum. Úps... Ég fékk ekki að svara símanum meira þetta kvöldið og baðst undan því að fara til dyra þegar hringt var á bjölluna... Halldór brosti sínu breiðasta og sagði að það hafi verið misskilningur í gangi og honum þætti það miður að hann hafi keyrt alla leið út í Hafnarfjörð... Á meðan sat ég í sófanum haldandi fyrir nefið og munninn svo hláturinn heyrðist ekki út, í alvörunni! maðurinn var með mjög furðulega rödd.

Humor is always based on a modicum of truth. Have you ever heard a joke about a father-in-law?
- Dick Clark

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Minntu mig á að gera símaat í þér..

togga.

Nafnlaus sagði...

nákvæmlega, hahahahahahahahahahaha
Bró

Nafnlaus sagði...

Gerðu eins og Þorgerður.
Litaðu á þerhárið ljóska (:
Kv. pabbi

Krakkinn