Halldór er orðinn Sveinn!!
Ekki á neinn tvíræðan þátt, bara búinn að fá afhent sveinsprófið sitt :o)
Rosalega flott hjá honum og ég ótrúlega stolt af honum.
Erum að fara að segja skilið við íbúðina okkar hérna í Hafnarfirði og ætlum að flytja okkur yfir til Tótu og Hafsteins í kjallarann um leið og við erum laus úr byggingarfélag námsmanna gildrunni!
Ég fór í sumarbústaðaferð síðustu helgi með nuddskóla hópnum. Bara brilliant! rosalega gaman hjá okkur og fróðlegt þar sem þetta var líka kennsluhelgi. Fengum 4 raðhús í sumarbústaðabyggð á Laugarvatni og 2 heitapotta, bara snilld, skemmtum okkur konunglega.
Á bara 2 vikur eftir af skólanum!!!! og verð að viðurkenna að ég hlakka til þrátt fyrir smá aðskilnað frá öllum krökkunum en við verðum bara ógeðslega dugleg að halda sambandi :o)
Þetta var svona það helsta í fréttum héðan... ekkert meira í bili.
þriðjudagur, mars 24, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



1 ummæli:
Jeeeee, frábært að heyra með kjallara íbúina!!! Ég skal hjálpa að skreita þegar ég kem hehehehe
Keyptu þér nýjan bíl sem er með pláss fyrir börn.
togga.
Skrifa ummæli