og opnuðum pakkann. Svava var búin að tala um að senda mér nokkrar leggings og nokkra kjóla, en nei kassinn var gjörsamlega fullur af dóti. Svo mikið var af fötum að ég tók allan fataskápinn minn og setti í poka og nýtt var sett inn, ekki oft sem maður getur gert svoleiðis en það er ógeðslega gaman! Hún sendi mér líka ipod sem hún notaði ekkert svo ég er komin í siðmenninguna og byrjuð að nota ipod í staðin fyrir mp3 spilara.
Hún stalst til þess að senda líka tvenn pör af barnafötum ásamt tvennum pörum af barnaskóm.
Ég í óléttutilfinningarússíbana með kökkinn í hálsinum yfir öllu þessu dóti (því ég var algjörlega að klepra á sjálfri mér í sömu fötunum dag eftir dag og raunveruleiki að renna á mann með barnafötunum) þá toppar Halldór þetta allt saman með því að segja mér að rétta sér aðeins hendina og setur á mig þennan flotta gullhring!! Jújú þá er maður víst bara trúlofaður núna takk fyrir takk!
Life is what happens to you while you're busy making other plans. - John Lennon



5 ummæli:
HEI!!!!!!!!!!
Til hamingju bæði tvö!!! Hólí smólí, frábært.
Krúsaðu nú kallinn frá mér!!´
Togga.
Takk fyrir það! :o) Kem skilaboðunum til skila ;)
Ertu að kidda mig kona!
mikið leikur lífið við þig :)
...TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA ALLT...
kossar
Heiða
Takk Heiða mín!! sé þig þegar prófin eru búin!! :D
Ohhhh en ógeð gaman og frábært :-) Til hamingju elsku uppáhalds söngfuglinn minn, ég hlakka til að sjá ykkur og heimta að sjá ykkur einhvern daginn með þeim gamla í Danmörku :-) hehe...
Luv
Mjöll
Skrifa ummæli