Ég og Halldór fórum semsagt í fyrsta sónarinn í gær, datt ekki í hug að hægt væri að fara í eitthvern snemmsónar sem stelpur og konur nú til dags fara 1-3 í áður en 12 vikna sónarinn er... ég vissi bara ekki neitt. Pissaði bara á prik, fór til læknis eins og ráðlagt var á pakkanum. Þar tók hann í höndina á mér og óskaði mér til hamingju. Ég var nú ekki alveg á því að þurfa að borga 1000 kr fyrir handaband frá lækni og hamingjuóskir svo ég kom því til skila að ég ætlaði allavegana að sitja þarna í 15-20 mínútur og hann þyrfti að fræða mig eitthvað meira um þetta, allavegana hvað næst?
Við komumst að því að litla dýrið ætti að koma 16. október svo ca. ef allt gengi vel.
Fórum semsagt í sónarinn í gær, eftir svefnlausa nótt hjá mér, þar sem ég velti mér um og hélt í alvörunni að það væri nú bara ekkert þarna inni...
En svo kom ég til ljósunnar og lagðist á bekkinn hjá henni, Halldór settist við hliðina á mér og uppi á vegg var stærðarinnar sjónvarp sem ég horfði á bara svarta mynd, togaði lipurlega niður buxurnar, ljósan skellti einhverju gumsi á magann á mér og ýtti svo með tækinu niður. Eins og blautri tusku hafi verið skellt framan í mig, í staðin fyrir svartan skjá horfi ég á blob-mynd af einhverju sem hefur haus... Allt í einu er byrjað að pikka í mig við hliðina á mér, Halldór í starandi stöðu á skjáinn að pikka í mig til þess að ath hvort ég sæi þetta ekki alveg örugglega. Krakkinn á fleigferð, spriklandi og ég veit ekki hvað! Ég í móki lít á ljósuna og spyr ljóskulega... "Er þetta í maganum á mér?" hún flissaði náttúrulega og sagði "jáááá reyndar". Svo mátti ég ekki hlæja né neitt... þurfti bara að liggja þarna kyrr og hvorki hreyfa legg né lið meðan hún þóttist eitthvað vera að mæla og þessháttar. Svo var bara allt búið og við gengum út með nýjan tíma í
20 vikna skoðun og 3 myndir af krakkanum.

Þessi mynd kallast hugsuðurinn...
The deepest definition of youth is life as yet untouched by tragedy. - Alfred North Whitehead



3 ummæli:
Jiiii Innilega til hamingju yndin mín!! Hrikalega spennandi! Óska þér einnig til hamingju með nuddskólaútskriftina!
Ótrúlega gaman að heyra í þér í gær :)
Knús
Heiða
veit ekki hvað ég á að skrifa, þetta er bara svo meiriháttar. flott mynd, líkur ykkur. Hakan þín og nefið hans Dóra :)
Sé ykkur á páskadag. Bró
Vá!! Ég hef aldrei séð svona skíra sónarmynd áður.. hólí krap Tobba.. Þú ert að verða mamma!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!Togga
Skrifa ummæli