Nonni boy er kominn aftur!!! Vá hvað ég var ánægð að fá hann aftur eftir 4 mánaða aðskilnað! Hvernig í ósköpunum er hægt að tengjast bíl svona? Ég sem er orðin bílaböðull...
Er svolítið vön að vakna á næturna og sjá hitt og þetta... stundum er þetta leyfar af einhverjum draumum, stundum er þetta eitthvað vinnutengt (ég að nudda axlirnar á Halldóri í svefni... hefur gerst). En um daginn rumskaði ég við það að eitthvað væri að læðast í rúminu eiginlega yfir höfðinu á mér... ég opna augun og get svo svarið það að ég hafi séð rassinn á ketti og skottið... ég settist snögglega í rúmið og kíkti niður á gólf, ekkert. Ég ákvað að leggjast niður aftur áður en ég myndi hrista Halldór og öskra, það er köttur í herberginu!!! ég lá í nokkrar sekúndur og hlustaði eftir hljóði. Nei, ég var ekki að verða vitlaus... það var eitthvað undir rúminu.
Auðvitað stökk ég á Halldór, hristi hann hraustlega og sagði "ÞAÐ ER KÖTTUR UNDIR RÚMINU!"
Halldór hélt ég væri enn eina ferðina að rugla eitthvað... ég sagði, söss!!! hlustaðu!! Látum í rúminu og héldum í okkur andanum, jú skruðningar undir rúminu. Halldór kveikti ljósin og allt í einu klukkan 3 að nóttu til vorum við tvö á kattaveiðum. Ef smá ksskss og mjá mjá þá kom kisan undan rúminu voðalega hlessa á okkur, var með augu eins og kisan í Shrek og purraði eins og smábátur. Hún hafði náð að stökkva inn um eldhúsgluggann hjá okkur í smá skoðunartúr...
Kötturinn var settur út þrátt fyrir mjálm og kvörtunartón frá dýrinu...
föstudagur, apríl 03, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



2 ummæli:
hahahhah ágætt að honum tókst ekki að skilja eftir litla gjöf handa ykkur!!
togga.
það var eimitt það sem maður bað til guðs að yrði ekki, maður hugsaði mikið til þess... Ekkert enn komið í leitirnar, sem betur fer ;) hehe
Skrifa ummæli