Það rann upp fyrir mér í gær að kúlan á mér hafi verið hörð (samdrættir) í næstum því 3 daga samfleytt... Var ekki viss hvort þetta væri normið þegar maður er kominn 34 vikur af 40 eða hvað svoooo ég bjallaði upp á fæðingadeild og sagði að ég hefði ekki hugmynd hvert ég ætti að hringja og svo söguna mína. Júúú þeim fannst þetta svolítið lygilegt eða að þetta ætti jafnvel ekki að vera svona svo þær báðu mig um að koma upp á deild í sírita til þess að tékka á þessum samdráttum og hreyfingum hjá krakkanum.
Ég í rólegheitum heima segi Halldóri að ég ætlaði bara að skjótast... Hann tók það ekki í mál! Hann mundi keyra mig og vera með mér þarna uppfrá. Ég hlýddi þessu svo við héldum af stað.
Upp á deild komum við og ég sett í sírita (mónitor) og ljósan var nú víst ekki alveg nógu hress með þetta, varð eiginlega bara nokkuð hissa... Sagði að ég væri að fara af stað... Ég ekki alveg á þessu, bara komin 34 vikur en búin að gera samning við krakkarassinn um að koma svona í kringum 38 vikuna. Ljósan hélt mér áfram í þessu síriti og fór fram á meðan, ég horfði á Halldór og sagði að þetta væri ekki hægt! Það væri fólk að koma í mat í kvöld og við ættum eftir að kaupa í matinn, plús þá ætlaði ég að eiga afmæli áður en krakkinn kæmi... Halldór náttúrulega starði bara á mig og hristi hausinn yfir forgangsröðuninni hjá mér. Ljósan kom aftur og gerði hinar ýmsu test og þessháttar á mér, talaði við fæðingarlækni og þessháttar og þau ákváðu að senda mig heim með uppáskrifaða slökun (ekkert meira að taka til og þrífa og þessháttar stúss, sem betur fer var ég fyrr um daginn búin að þrífa allt saman heima!). Þau vildi helst að ég blési matarboðið af en ég sannfærði þau um að Halldór minn sæi þá bara nokkurnvegin um þetta allt saman svo ég fékk samþykki ;o)
Allt er ennþá í góðu, er reyndar eins og síðustu daga með harða kúlu út í loftið... En á meðan það heldur sér bara þannig ætti ég geta haldið þessum krakka inni allavegana til 37-38viku ;o)
mánudagur, september 07, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



2 ummæli:
Til hamingju með afmælið elsku Tobba mín!!!
Takk takk! :D
Skrifa ummæli