föstudagur, október 02, 2009

SAMDRÆTTIR.IS!!

Er búin að vera með samdrætti núna í þó nokkrar vikur og fyrirvaraverki jafnvel með. Bjúgur byrjaður að setjast á tásurnar á mér og ég er komin með cankles sem er svoooo sexý og ekki tala ég um hormónabólurnar... Loksins að það kom að einhverju svona því þessi meðganga er búin að ganga vonum framar! hehehehe

Fórum í myndatöku um daginn til vinkonu okkar hennar Thelmu sem tók nokkar kúlusúkkmyndir af okkur sem var bara gaman, ágætt að eiga myndir af því þegar maður mátti vera með magann óheftan flaxandi yfir buxnastrengi ;o)


Núna er svona smá bið byrjuð, búin að vera mjög stillt síðan ég fór þarna af stað óvart síðast en hef verið svolítið active síðustu viku þegar ég var komin 37 vikurnar. Allavegana þá er allt tilbúið hérna heima svo núna er bara að viðhalda heimilinu í reglu og hreinu!
Spurning hvort krakkarassinn sé kominn í heiminn næst þegar ég skrifa hérna, kemur í ljós kemur í ljós...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

er að telja niður..

togga

Krakkinn