föstudagur, október 23, 2009

Var búin að vera með reglulega verki og samdrætti í nokkuð langan tíma svo ljósan hreyfði við belgnum hjá mér fimmtudaginn 15. október þegar ég var komin 39v+6 og orðin vel hagstæð. Ég fór heim og slappaði af en var alltaf með svona seiðing eins og vanalega í bakinu en hann var bara orðinn öflugri. Klukkan 21 um kvöldið fatta ég að þetta eru reglulegir verkir og sterkari en áður svo nú hófst að taka tímann. Ég ákvað að vera ekkert að hringja upp á deild fyrr en vaktaskiptin væru búin á miðnætti... Ég hringi uppeftir og ég var beðin um að koma í skoðun bara á Hreiðrinu. Við skutlumst niðureftir en tókum okkur ágætis tíma og vorum því þarna um 3 leytið um nóttina. Ekkert hafði breyst úr skoðuninni fyrr um daginn svo ég fór bara heim og lagði mig. Klukkan 6 vakna ég við að mér finnst eins og ég sé að pissa í mig og ég get svo svarið það að á þessari meðgöngu hef ég aldrei verið eins fljót úr rúminu! Sem betur fer var ég með nokkuð gott dömubindi á mér en það tók samt ekki við þessum 3 gusum sem komu frá mér, ég var ennþá ekki viss hvort ég væri að pissa eða missa legvatnið. Skipti um bindi og lagðist upp í rúm aftur. Fann að verkirnir voru dottnir niður. Það var alltaf að leka svo ég hringdi upp á deild og þær báðu mig um að kíkja hjá sér þegar ég væri búin að fá mér morgunmat og almennilega vöknuð. Við vorum komin uppeftir svona um klukkan 9 og biðum eftir frekari upplýsingum... Þarna var farið að leka svo mikið hjá mér að ég fékk bara hálfgerða bleyju þarna sem ég hló óstjórnlega mikið af... Mónitorinn kom fínt út og í lokin á honum byrjuðu svo hríðarnar að koma með aðeins verri verkjum en ég hafði verið að finna. Þær sögðu að við mættum leggjast inn á Hreiðrið ef við vildum eða bara skreppa á kaffihús og koma aftur eftir smá tíma... Vatnið lak eins og stríður straumur frá mér svo ég vildi bara fara aftur heim og sækja auka buxur og þessháttar því bleyjur og bindi höfðu varla undan. Þegar þetta var allt tilbúið þá ákváðum við að skella okkur í ísbúðina sem er búin að vera góðvinur okkar á þessari meðgöngu og fá okkur ís áður en upp á deild yrði haldið. Um klukkan 13 var ég komin upp á Hreiður og í tékk. Ég var komin með ágætlega harða verki svo ég fékk nálastungur, mér fannst þær ekki slá eins á og ég var að vona en um leið og ég mátti fara í baðið bað ég um að nálunum yrði kippt úr því ég ætlaði ofaní baðið! Rogaðist þangað ofaní og OMG! vá hvað þetta var æðislegt og sló ótrúlega vel á verkina því slökunin var svo góð. Þegar klukkan var orðin eitthvað um 5 tékkaði hún á útvíkkuninni hjá mér því mér fannst verkirnir vera orðnir allt of miklir og ég hlyti að fara að klára þetta... Neei... útvíkkunin var bara 6! Ég ætlaði ekki að trúa þessu en ljósan sagði að ég yrði svona búin um klukkan 21 um kvöldið... Ég fór á smá svona "vorkenni mér sjálfri svoooo" stig og sagði að ég gæti þetta ekki með þessu áframhaldi en Halldór minn sem var by the way hetjan mín! og ljósan töldu mér trú um að ég gæti þetta alveg og þau vildu ekki hlusta á svona mænurótardeyfingartal... Á þessum tímapunkti byrjaði ég að blása eins og hvalur og lét vel í mér heyra, mér var orðið "fokk" sama um allt, hugsun mín um friðsæla fæðingu fauk sem lönd og leið og ég var alvarlega byrjuð að íhuga að stinga höfðinu bara í kaf ofaní vatnið og drukkna... Mér til mikils happs þá gat ég ekki hugsað hárið á mér atað í þessu vatni sem var með legvatninu líka... ;) klukkan 20 kemur ný yndisleg ljósa inn og tekur við af hinni sem var búin að standa sig eins og hetja þarna hjá okkur. Ég í miðri hríð stoppa að mása og blása eins og hvalur og kynni mig og segist ætla að klára þetta klukkan 21:00 (alltaf frekar stutt í húmorinn hjá mér :) ) þau hlæja að mér þarna og svo held ég bara áfram mínum vanagang ofaní baðinu. Hún býðst fljótlega til að kíkja á útvíkkunina hjá mér þar sem ég var byrjuð að fá svo svakalega hríðar að þær runnu saman, ég byrjuð að kasta upp, komin rembingstilfinning og ég ætlaði að hætta við þetta allt saman. Í þokkabót var ég komin með ágætlega leið á hljóðunum í sjálfri mér og lét Halldór og ljósuna vita af því. Ljósan segir mér glöð í bragði klukkan 20:30 að ég sé komin með 8 í útvíkkun, ég hváði og langaði mest til þess að fara að grenja, leit á klukkuna og sagði að það væri þá ekki mikill séns á að ég gæti átt barnið klukkan 21:00. Hún hló og sagði nei því miður en þessi fasi fram að fullri útvíkkun tæki ekki langan tíma svo væri það bara rembingurinn eftir. Ég heimtaði aftur að fá mænurótardeyfingu en allir mótmæltu því og sögðu að það tæki því ekki úr þessu... En ljósan mín vissi að það væri til önnur deyfing sem væri ekkert mál að gera svo hún nefndi það við mig og ég kallaði uppyfir mig játs!! Þegar full útvíkkun var komin var ég dregin upp úr baðinu og mér komið í rúmið í nokkrum hríðum, loks kom ljósan sem kunni þessa deyfingu og kom henni snilldarlega fyrir. Núna mátti ég fara að rembast af öllum krafti, þær vildu samt prufa að ég sæti á klósettinu fyrst á meðan... ég prufaði það en fékk allt í einu svo brjálað samviskubit því þær voru með allt tilbúið þarna inni á baði og bjuggust við að ég myndi fæða barnið ofaní klósettið... Ég snarhætti við að eiga barnið þarna inni á klósettinu, gat ekki ímyndað mér að segja litlunni minni seinna meir að hún hafi fæðst ofaní klósettið á fæðingarherbergi 19 á LSH, svo ég dröslaðist aftur inn í rúm þar sem ég kláraði þetta klukkan 22:44 með kallinn minn við hliðina á mér upp í rúmi. Þvílík stund þegar ég fékk að finna kollinn áður en síðustu rembingarnir komu og heyra ljósuna og Halldór segja mér hvernig hárið væri á litinn. Það var svo mikil hvatning að krakkinn poppaði fljótlega út. Enn ótrúlegri stund var það þegar stelpurassinum mínum var skellt upp á bringuna á mér. Hún var svo falleg á litinn, ekkert grá eða þessháttar bara fallega "rauð". Ljósan beið meðan það púlsaði úr naflastrengnum og leyfði mér að finna það sjálfri þegar hann púlsaði og þegar það hætti. Halldór fékk svo að klippa á naflastrenginn :o) Fólkið þarna upp á LSH er bara yndislegt og þær ljósur sem komu við fæðinguna voru bara yndi og vildu allt fyrir mann gera. Mér fannst líka dásamlegt að eiga þarna á Hreiðrinu, var svolítið hrædd um að finnast þetta bara vera eins og að eiga á hótelherbergi en fann enga svoleiðis tilfinningu þegar á hólminn var komið :o)

Hérna eru nokkrar myndir...




glæný


á leiðinni í 5 daga skoðun

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Enn og aftur til hamingju með frumburðinn og fæðinguna :) Hvað var sú stutta stór?
kv heiða

Tobba sagði...

takk takk :)
Þetta er bolti!! Hún var 18 merkur (4485gr) og 54 cm

Nafnlaus sagði...

Wwow ;)
Sjáumst vonandi í næstu bæjarferð
kv Heiða

Tobba sagði...

Endilega snúlla :D

Krakkinn