Það er hægt að sofa.
Fór upp í sumarbústað til mömmu og pabba þegar ég var búin í vinnunni. Lá í heitapottinum og svaf. Alveg búin eftir síðustu vikuna í vinnunni. Ég fór með Tómas og Davíð Inga með mér upp í bústað. Pabbi gerði þvílíka vatnsrennibraut fyrir þá og það var æðislegt að sjá þá þarna í henni. Sól og blíða fyrstu 2 dagana, rigning 3 daginn og þá rúllaði ég mér heim þar sem ég þurfti netið til þess að halda áfram að læra.
Skrapp í vinnuna í gær (laugardag) og var að vinna í risastóru brúðkaupi. Hætti um klukkan 3 en var samt ekki komin heim fyrr en rétt fyrir fimm.
Var að lesa moggan um daginn og sá þetta. Hvað segið þið um að Íslendingar sameinist bara og kaupi þetta saman, fínt heilsárs "frííútlöndum" hús fyrir okkur.
You cannot plough a field by turning it over in your mind. - Author Unknown
sunnudagur, júlí 22, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



1 ummæli:
Því miður þá hafa íslendingar ekki efni á hinum árlega eignarskatti á þessu húsi!!!!!
Togga.
Skrifa ummæli