sunnudagur, október 05, 2008

Ohhhh ég fékk svo ótrúlega góða hugmynd um daginn. Af því að við fjölskyldan (sem komumst) erum að fara í sumarbústað næstu helgi þar sem er heitapottur og allt það :o).
Ætlum meira að segja að vera með tvo bústaði hliðina á hvorum öðrum svo við komum öllum fyrir!
Þannig að mér datt í hug, þar sem ég verð að vera búin að ná heilnuddinu niður í tíma fyrir þriðjudaginn í vikunni eftir, að taka með mér nuddbekk og nudda liðið og henda því svo í heitapottinn þannig að fólk verði orðið mjúkt og marinerað eins og góður nautavöðvi eftir helgina :o). Í minni fjölskyldu eru engir aumingjar svo það segir enginn nei við nuddi hjá mér... Þeir sem ég má ekki nudda heilnudd (vegna veikinda) fá þá bara í staðinn svæðanudd.

You've got to take the bitter with the sour. - Samuel Goldwyn

Engin ummæli:

Krakkinn