þriðjudagur, október 07, 2008

Við Halldór erum búin að sofa í frekar litlu rúmi í dágóðan tíma, það er svo lítið að ef ég vildi snúa mér á næturnar þurfti ég að ýta við honum og segja honum að það væri kominn tími á snúi tíma...
Við vorum búin að vera að tala um að fá okkur nýtt rúm, en þetta var samt eiginlega bara fjarlægur draumur því við vorum ekki alveg með pening á milli handanna sem við þurftum til að kaupa rúm.
Í gær var ég svo í tíma sem ég var ekkert svo mikið að fylgjast með í, því það er algjör óþarfi, og skoðaði því smáauglýsingar í staðin.
Dett í hug að tékka á rúmum og dett niður á auglýsingu sem var sett inn snemma um morguninn um súper dúper king size rúm, 2 ára, kostaði 250.000 þá, sá sem þurfti að losna við það var að flytja til útlanda um nóttina og gat ekki tekið rúmið með sér. Hafði keypt þetta massa rúm eftir að hafa meiðst í baki eftir slys svo þetta var alvöru rúm frá Betra bak. En af því að hann þurfti að losna við rúmið núna þá kostaði það bara 25.000.
Ég hringi náttúrulega í Halldór og læt hann vita af þessu. Hann hringir í seljandann og við eigum núna riiiiiiisa rúm sem er geðveikt að sofa í, svo hátt að ég þarf að príla upp í það eins og prinsessan á bauninni! Ég get ekki tillt rassinum upp á dýnuna! og það er eiginlega bara herbergið okkar núna, hahaha. Aldrei átt svona massa rúm!

"Dig where the gold is…unless you just need some exercise." - John M. Capozzi

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er það Californa King eins og mitt...


Togga

Tobba sagði...

örugglega, allavegana rosa massíft! Já mjög hátt og stórt.

Unknown sagði...

Er ss pláss á milli.

Heiða

Tobba sagði...

hahahahah... alltaf pláss fyrir þig á milli ;o)

Krakkinn